|
|
28.12.2006 15:52:33 / adda_p
Vona að þið hafið haft það alveg rosalega gott yfir jólin, eða
það sem er búið af þeim! Borðað nóg og slappað óendanlega mikið af
Ég er allavega búin að ákveða að gera það þegar ég KEM HEIM
EFTIR 8 DAGA!!!!!!!!
Jólin hjá okkur Huldu í Oxford voru bara nokkuð kósý, kannski
smá skrítin en góð samt! Maturinn á aðfangadag var bara mjög góður
en á jóladag...hhhuuhhhuumm.... hvíta sósan (jafningurinn) var ekki
alveg að takast hjá okkur þannig við enduðum á hvítri pakka sósu
sem smakkaðist samt eiginlega eins og fiskisósa!!! Sko ef ég væri
ekki að koma heim í næstu viku vitandi það að ég fái hangikjötið
mitt og allt sem því fylgir þá hefði ég klárlega farið að grenja
eins og margir vita þá finnst mér hangikjötið það besta sem
ég fæ á jólunum.
Mín var nú ekki alveg sátt í vinnunni í gær þegar þau voru að
tala um að núna væru jólin bara búin og tóku meira að segja smá
jólaskraut niður! Ég fór auðvitað að segja þeim að jólin væru
ekkert búin fyrr en 6.janúar og 7.janúar, þá væri manni óhætt að
taka niður jólaskrautið.... þeim fannst það e-ð frekar skrítið!

Annars er mín bara ein í kotinu núna, var svona hálf smeik við
það fyrst en svo er þetta bara nokkuð fínt....hehe! Er í fríi í dag
þannig að ég ætla að fara að klára jólagjafakaupin þar sem ég er
síðan meira og minna að vinna þangað til ég kem heim! Ætla svo að
elda e-ð gott í kvöld og setja einhverja góða mynd í tækið... uff,
hljómar OF nice hehe
Núna er maður svo búin að skipurleggja gamlárskvöldið..... thank
god! Ég er sem sagt að vinna um daginn, ætla svo að fara með egle
og systir hennar út um kvöldið. Veit ekki alveg hva cluburinn
heitir en maður borgar sem sagt 60 pund og svo er frítt áfengi allt
kvöldið þetta er nú kannski ekkert það ódýrasta en ææii fuck
it.... það er gamlárskvöld!!!
ok, þetta er orðið gott í bili..... hlakka svo bara til að sjá
flest ykkar í NÆSTU viku 
cheers
»
21.12.2006 13:52:27 / adda_p
Hún á afmæli í dag... Hún á afmæli í
dag
Húúúún á aaaaaafmæli hún Auður
Hún á afmæli í dag
Hún er 23 ára í dag... Hún er 23
ára í dag
Húúúún er 23 ára hún Auður
Hún
er 23 ára
í dag
aaahahahahaha......... ég hef svoooo gaman að þessu
enda mikið afmælisbarn!! 
2 vikur og 1 dagur þangað til að ég kem heim, sem
þýðir bara 9 nokkuð auðveldir vinnudagar eftir 
2 dagar þangað til að ég fer til hennar
Huldu minnar í Oxford og þá verður sko eldað íslenskt já takk!
Ætla nú líka að nota tímann meðan ég er þar og Hulda að vinna
og skoða mig aðeins um og njóta þess að það séu jól og ég í
fríi.
Gamlárskvöld er enn óráðið en eins og staðan er á
mér í dag þá væri ég miklu meira en til í að taka því bara
rólega.
Jæja, er farin í bæinn með strákana, aldrei að vita
nema ég kaupir eins og eitt stykki afmælisgjöf
handa mér... hehe...
Adios
»
18.12.2006 20:11:12 / adda_p
Hæ Hó
Ég er búin að bóka flugið heim í janúar, ég kem 5.janúar og á
svo ekki flug aftur út fyrr en 21.janúar....aaaaaaaa...... ég er
svo spennt!!
Það sem að ég ætla að gera þegar ég kem heim
- fara á skauta
- fá mér pizzu í bakaríinu við brúnna
- fara í ljós
- fara út að hlaupa
- fá mér brynjuís
- fara í kjarnaskóg
- slappa af
- sofa í rúminu MÍNU

- fara í klippingu og litun
- kíkja út á lífið
- borða mömmumat..... hlakka sérstaklega mikið til að fá
mjólkugrautinn

- leika mér í snjónum með púkunum mínum! hehe
- fara á álfabrennuna með Jake
- fara á Bautann/Belluna og fá mér e-ð gott í gogginn
- njóta þess að vera með fjölskyldunni
........ og svo margt margt meira!!!!!
Ætla svo að njóta þess að vera heima, ég er svo spennt! Trust
me.... ég er sko byrjuð að telja niður dagana... 17
dagar!!!!
Stelpur, er svo ekki um að gera að við skipuleggjum
stelpuhitting?!?! Eiginlega bara alveg must, það er svo margt búið
að gerast og margt að segja 
Sjáumst eftir 17 daga!
Adda Ant
»
14.12.2006 17:54:54 / adda_p
Það er svo margt búið að gerast síðan seinast að ég á eiginlega
bara erfitt með mig, hef svo mikið að segja en veit ekki hvar ég á
að byrja!
- Við Gyða fluttum úr litlu holunni, sem var bara búin að gera
það gott
- Við höfum ekki ennþá fundið neitt sem að við höfum fallið
fyrir, eða jú við reyndar fundum eina íbúð en aaaaaaaaaa...... við
fengum hana s.s. ekki
- Ég er núna hjá Ástu og Kalla og Gyða er í Croydon
- Mér finnst nú reyndar mjög gott að vera hérna, enda ekki annað
hægt þar sem að þau og strákarnir eru náttlega bara yndisleg
- Við ætlum okkur sko að vera komnar í e-ð almennilegt eftir
áramót
- Eins og flestir vita þá kem ég ekki heim um jólin
væri nú
meira en til í það en maður reddar sér hérna
- Kem hinsvegar heim í Janúar og ætla þá að vera í 2 vikur og ég
hlakka svooooooo sjúklega mikið til að komast aðeins heim í
snjóinn!!!!!!
- Það kom tímabil þar sem ég var ekki alveg nóg sátt í vinnunni
en það hefur breyst. Er barasta orðin nokkuð sátt núna og miklu
meira en nóg að gera
- Búin að tjútta nokkuð mikið en samt ekki svo! Bara svona eins
og ég á að gera meðan ég er ennþá ung og fersk
svo er maður
náttlega líka í london þannig að....... Er samt ekki búin að tjútta
nógu mikið með henni Gyðu minni undanfarið enda verður sko
bætt úr því í janúar takk fyrir pent 
- Fór út seinasta laugardag með Egle sem ég er að vinna með. Við
byrjuðum snemma heima hjá henni og skemmtun okkur konunglega! Ekki
fannst henni nú passoa-ið mitt slæmt
hehe..... fórum á tvo
voða flotta klúbba!
- Eftir klúbbana hitti ég vin minn og vin hans og endaði á að
fara með þeim í e-ð casino og fékk membershipcard.... ekki var ég
að biðja um það, ég kann ekki einu sinni á svona!!! hehe... þeir
voru hins vegar ekki alveg nógu sáttir þar sem þeir fengu ekki
kort... aahahaha.... svona er að vera stelpa
hehe
- Var að skreyta jólatréið áðan með Óðni.... er komin í þennann
þvílíka jólafíling!!
- Er samt ekki búin að versla neinar jólagjafir en jjii
ég þarf að fara að byrja, ég er alltaf og ég meina
alltaf á síðustu stundu með þetta!
- Ég virkilega ÞOLI ekki og þá meina ég VIRKILEGA ÞOLI EKKI
bankana hérna í Bretlandi og þjónustuna þar! Þeir sem hafa átt
viðskipti við þetta (já þetta á ekki skilið að vera
kallað annað en þetta), þeir vita sko klárlega hvað ég er að
tala um!!!!!! verð bara pirruð á að hugsa eða ræða um þetta þannig
að ég ætla mér bara ekki að gera það!
- Ég á afmæli næsta fimmtudag eftir viku
ooooo ég
afmælisbarnið sjálft, ég hlakka svoooo mikið til! Ætla mjög
líklega að skreppa á tjúttið með Egle og jafnvel fleirum
úr vinnunni!
Úff, þegar ég skrifa ekki í svona langann tíma,
þá get ég hreinlega ekki munað eftir öllu því sem
hefur gerst og ég verður bara e-ð svo tóm þegar ég ætla að
fara að segja frá öllu sem hefur verið að gerast í mínu daglega
lífi en þið getið allavega verið alveg viss um það að mér
leiðist ekki þar sem það er alltaf miklu meira en nóg að gera
hérna!!!
Svo bara hvet ég alla til þess að koma í heimsókn á næsta ári,
vil bara fá sem flesta!!
Jæja, ætla að fara að hjálpa til við matinn
cheers
»
02.11.2006 16:00:41 / adda_p
Það er kominn vetur hérna hjá okkur..... við erum að tala um að það
er búið að vera drullukalt hérna í gær og í dag!!! Ég sef meira að
segja í náttbuxum og peysu
Búið að skipurleggja helgina og held ég barasta að hún lofi mjög
góðu, læt ykkur vita hvernig fer!
Ætla að slappa af í smá og svo er ég farin að þvo þvottinn minn
enda veitir ekki af.... ef ég læt þetta bíða mikið lengur þá fer ég
að labba berrössuð um bæinn  ekki alveg það sem ég hafði hugsað
mér að gera.
Green Eyes með Coldplay er svo sannarlega að gera það gott hjá mér
núna.... voða kósý!!!
koss og knús til þeirra sem eiga það skilið
»
19.10.2006 17:14:48 / adda_p
Allt gott að frétta hérna af minni í þessari líka yndislegu
borg!! alltaf miklu meira en nóg að gera í vinnunni og einnig í
öðru stöffi!
Aðal ástæðan fyrir þessu bloggi er þó ekkert voða skemmtileg....
eða mér finnst það allavega ekki!!!! Mín er sem sagt búin að ákveða
það að koma ekki heim um jólin  Það er víst mjööööög mikið
að gera í vinnunni í kringum jólin og því litlar sem engar líkur á
því að ég fái frí sem er e-ð varið í, þá er ég að tala um viku
allavega!! eeeennn ég ætla mér að koma heim í janúar, helst fyrir
þrettándann, og þá vera í 2 vikur eða svo  Ég er búin að hugsa
mikið um þetta en vil frekar koma heim í janúar og ná 2 vikum í
staðinn fyrir einhverja 4-5 daga!!! Verð því bara hérna í Londoninu
um jólin (ætla nú reyndar að fara til oxford til hennar Huldu
minnar líka) og ég er búin að fá staðfestingu hjá mömmu að hún ætli
að senda mér hangikjöt og allt sem því fylgir  ææææiii
þetta verður alls ekkert það slæmt..... ég ætla bara að njóta þess
að vera hérna og hafa gaman af því!!
en nóg af þessu..... núna er mín búin að kaupa sér myndavél þannig
að varúð varúð.... núna er sko picture time  skal reyna mitt
besta við að vera dugleg að setja myndir hérna inn..
jæja er farin að huga að matnum... fiskur, grænmeti, karöflur og
gúrka, bara hollt og gott
cheers mate
»
30.09.2006 20:44:00 / adda_p
»
20.09.2006 19:21:16 / adda_p
jæja jæja.... þá er mín komin til London eins og flest allir ættu
svo sem að vita nú þegar!
Mikið og margt skemmtilegt búið að gerast hérna síðustu daga, þó
svolítið mikið dund en er það ekki bara fínt svona af og til
Ég kom svolítið seint á föstudagskvöld þannig að við ákváðum bara
að vera heima og enduðum á því að horfa á American Dreams......
mæli EKKI með þessari mynd, bara eintómt rugl, bull og vitleysa...
hehe... En á laugardaginn kom Hulda til London (voða gott að hitta
þessa elsku loksins aftur) og fórum við aðeins á röltið ásamt henni
Gyðu. Enduðum svo heima þar sem að mín byrjaði að hella í glösin...
þó aðallega mitt  hehe.... svo þegar Hulda fór heim þá héldum við
Gyða bara áfram að tjútta og var sko heldur betur tekið á því í
þetta skiptið og það er allt sem að þið fáið að vita... hía á
ykkur!!
Ég er búin að vera að sækja um nokkrar vinnur og fór líka í
atvinnuviðtal í dag hjá oxo tower restaurant, ekki sem þjónn heldur
receptionist! Þetta er mjöööög flottur og víst líka vinsæll staður
hér í London sem er svona í aðeins dýrari kantinum. Viðtalið gekk
bara mjög vel og er mín að fara í prufu á föstudagskvöldið frá 5 og
til 10...... wish me luck  Svo eftir það mun mín fara beint
heim, taka sig til, fá sér í glas og svo hitta þær Gyðu, Hildi og
vinkonu Hildar þar sem þær verða líklegast komnar á einhvern pub og
byrjaðar að djúsa!! Já, sem sagt djamm á föstudag... íííhhaa!!!
En jæja, ég ætlaði nú bara svona aðeins að láta heyra í mér og
leyfa ykkur elskunum að fylgjast aðeins með!
Annars er ég komin með nýtt númer þar sem að ég gat ekki notað mitt
gamla, en nýja númerið er 00447748849445 fyrir þá sem eru heima og
07748849445 fyrir þá sem eru í Englandinu...... alveg endilega
hafiði samband, þó að það sé nú ekki nema bara eitt sms!!
Svo á hún stóra systir afmæli í dag..... efast um að hún lesi þetta
eeeennn bara svona til gamans!!
cheers mates!
»
09.09.2006 15:09:22 / adda_p
»
26.07.2006 15:12:31 / adda_p
hvað segiði, e-ð að frétta?!? hhhuummm.... get nú ekki beint
sagt það þar sem maður gerir ekkert annað þessa dagana nema að
vinna vinna og já bara vinna meira.... maður lætur sko peninga ekki
fara neitt framhjá sér svona á sumrin 
annars er ég búin að panta flugið út til london og fer ég út
15.september but no worries, ég kem nú heim um jólin ég er orðin
svo sjúklega spennt að þið hreinlega trúið því ekki..... 6 vikur
næsta föstudag! ég er ekki komin með neina vinnu, er reyndar ekkert
byrjuð að sækja um einu sinni, er bara voða róleg yfir þessu! Held
að það reddist nú alveg strax, er svo rosalega mikið um vinnur
þarna þannig að!! annars ætla ég að byrja að sækja um svona í lok
ágúst þannig það bíða nú kannski einhver atvinnuviðtöl eftir mér
þegar ég kem út..... það væri nú ekki slæmt 
Bootcampið gengur bara rosa vel og ég er alveg að fíla þetta,
algjörlega fyrir mig, enda er mín búin að skrá sig á annað námskeið
sem byrjar bara strax næsta mánudag þannig maður tekur sér nú
ekkert frí! svo er bara að halda þessu þegar maður fer út!! jújú,
það gengur alveg hehe
Svo er versló bara alveg að fara að skella á mín verður víst
bara í bænum þessa versló eins og allar aðrar versló!! maður verður
víst að vinna alla helgina en ekki ætla ég að láta það stoppa mig
og ÆTLA ég sko að fara á sálina á laugardagskvöldinu.... oohh gamla
góða sálin, ekkert sem getur toppað þá 
jáhá, held ég láti þetta gott heita í bili og skelli mér jafnvel
út í góða veðrið og þvoi bílinn, ekki veitir af hehe
adios þangað til næst
»
15.06.2006 01:42:56 / adda_p
|
Veðrið hérna er nú ekkert til þess að hrópa húrra fyrir.... mig
langar bara í sól og hita svo ég fái nú einhvern lit en ætli ég
endi ekki bara með því að splæsa í einu stykki ljósakorti

Núna er víst ekkert aftur snúið hjá minni með ákvörðun mína með
að koma til London í haust nema ég myndi vinna hér heima.....
ææii mig langar það samt ekki beint! síðasti sjéns til þess að
borga skólagjöldin var nefnilega núna í byrjun júní þannig að
ooohhh well..... London watch out 
Mín var að skrá sig í boot camp námskeið sem byrjar á
mánudaginn þannig það er bara rise and shine
kl.05:40
obbobbobb... hehe!! taka vel á því áður en maður joinar Gyðu úti og
hlaupa þetta spik af sér ekki
veitir af.... hehehe!!
Ég er búin að fá út úr öllum prófunum og of course náði mín...
hehe! þó maður hafi nú kannski ekki alveg átt það skilið sökum leti
but I just couldn´t care less... ég náði þannig núna er það bara sirka árs frí og svo bara
tvö ár eftir af skólanum, allavega í bili og svo veit maður
aldrei hvort maður fari í framhaldsnám, finnst það samt
einhvernvegin mjög líklegt!
Mín missti sig smá á trampolíni á laugardag áður en ég skellti
mér á djammið! dúdda mía hva þetta er sjúklega
gaman! endaði með nokkur sár og einn svolítið stórann marblett
en það var sko alveg þess virði! Svo fann ég hlaupahjól (ég stal
því ekki bara svona til þess að hafa það á hreinu) í bænum og var
aðeins að leika mér á því ásamt maju vinkonu og ég er barasta ekki
frá því að ég sé betri á þessu þegar ég er smá í
glasi
hehe.... en núna er það áfengispása (ekki djammpása samt) meðan ég
er í boot camp fyrir utan helgina sem ég fer suður á skagann!! þá
ætla ég aðeins að leyfa mér smá sem verður svo eflaust aðeins
meira.... bara pínu meira..... ok bara smá.... flind bull

jæja, þarf víst að fara að gera mig sæta fyrir vinnuna!
cheers |
»
14.03.2006 21:37:34 / adda_p
»
24.02.2006 01:05:39 / adda_p
www.blog.central.is/londonskvisur
...... ég, gyða og helga að blogga!!
www.blog.central.is/vidskiptaklikan
...... klíkan á fyrsta ári byrjuð með blog hehe
www.blog.central.is/bautastaff .....
þarf ég að segja meira!!
Svo er það bara London 14.apríl og verð í 8 daga........ get
EKKI beðið....aaaaaaaaaaaaa!!!!! það verður sjúklegt hjá okkur
skvísunum..... ég, gyða, helga og maría.... skrautleg
samsetning hehehe!!!
»
16.01.2006 21:51:04 / adda_p
jæja, stærðfræðin er víst löngu búin og auðvitað náði mín
hvað annað!!
annars er mín að pæla í að taka smá bloggpásu eða jafnvel bara
hætta þessu rugli, þetta er bara ekki alveg að gera sig.... já eða
ég allavega ekki að nenna þessu kem kannski með blogg ef ég hef
einhverjar stór fréttir!
cheers
»
09.01.2006 13:30:48 / adda_p
Jæja, stærðfræðipróf eftir hálftíma ...... gangi mér vel
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|